|
|
03.06.2007 23:31:45 / Sveinbi

Hélt
sjálfur að þetta væri ég fyrir nokkrum árum, en áttaði mig svo á að
ég er og hef aldrei verið í bræðrafélagi sem heitir Oddur...
Hugsanlega verið ruglast á krökkum uppá spítala, þar sem ég á
systir á svipuðum aldri og þessi, henda henni í dna test, yep thats
it...
myspace.com/sveinbi
»
11.04.2007 15:03:00 / Sveinbi
»
03.07.2006 21:18:43 / Sveinbi
Var að skella nokkrum
myndum inn frá sumarbústaðarferð góðra manna, þar var grillað og
farið í typpaleikinn sem siddi eða baldvin rústuðu. Svoldið langt
síðan hún var... var bara að finna myndirnar
Mikið um nekt og.... fulla Baldvin


Svo var þessi þarna, hann var stuðbolti mikill og góður
maður

Hehehehe sooowy Óskar, varð að láta þessa fylgja
Are you ready!?!? SCOOOTAH!!! unntss unntss unntss

http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=11047888&uid=4306618&members=1 allar
myndirnar
»
29.06.2006 03:18:24 / Sveinbi
Afhverju kalla kanar alltaf
fellibyli menskum nöfnum?
Hæ, ég heiti konráð og er fellibylur
Mr.Stressi
Er andvaka hérna þótt ég sé að deyja úr þreytu, þá bara get ég ekki
sofnað, er að deyja úr stressi.
Venjulegt fólk er hrætt við uppvakninga og einhver weird looking
skrímsli, ég er hræddur við býflugur, gamalt fólk í umferðinni og
tannlækna.
Er einmitt að fara hitta einn svoleiðis í fyrramálið og er að deyja
úr stressi.
Sé bara fyrir mér skært ljós ofan í andlitinu á mér, ryksugu og
borhljóð, svo þvílíkan verk niður í kjálka þegar doctorinn borar of
langt… aSDSDF gæsahúð 
Hef ekki farið til tannsa í 6 ár, alltaf beilað á því á síðustu
stundu, en planið er að mæta á morgun að fá svona flúor thingy á
tennurnar.
http://www03.quizyourfriends.com/linkquiz02.php?quizname=060613162019-705879
Hitler endurfæddur?

»
01.05.2006 20:09:27 / Sveinbi
Afhverju klappar fólk oft þegar flugmaður lendir flugvélinni sinni,
þetta er vinnan hans.. Gæti alveg eins klappað fyrir gaurnum á
McDonalds þegar hann flippar burgernum mínum. Veit ekki hvort fólk
í Grindavík sé svona spes eða bara svona kurteist, allavegana
klöppuðu nokkrar stelpur þaðan þegar sameiginleg flugvél þeirra og
okkar í Reyni lenti í Alicante.
Þar spilaði maður fótbolta, fékk sér bensínstöðvarpizzur, sá mann
kúka í vask, horfði á flottu gelluna sem fór alltaf úr að ofan á
ströndinni, fékk mér tequila, þóttist vera Hans frá Svíþjóð, gékk
vel þangað til ég hitti Svía, þá breytti ég í Hanz from France.
Pantaði mér pizzu á spænsku og fékk 2 spænskar stelpur til að dansa
við Fjeldstedinn, takk Einar Trausti.
Kvenkyns kúluvarparar eru skondnir, littlar kögglakellingar sem
keppast við að kasta kúlu sem lengst, engin sjáanlegur
breiddarmunur á útlimum þeirra, hálsin jafn þykkur og lærin. Er
ekki frá því að Gummi hafi deitað eina svoleiðis, en hann mun neita
því.
»
14.03.2006 23:05:11 / Sveinbi
Ég ætla vera töff ellilíferisþegi, ætla koma mér vel fyrir á
einhverju topp elliheimili, klæðast leddara vesti, kúrekastígvélum
og vera með sítt að aftan.
Ætla sko ekki að vera eins og flestir gamlingjar sem japla á
kjálkanum á sér og telja brúnu flekkina á handarbakinu á sér allan
daginn, og horfa á matlock eða gísla martein á kvöldin.
Ætla vera alger uppreisnarseggur, neita taka lyfin mín og stelast
til að fá mér ábót af kaffi eftir kvöldmatinn, ef til vill stelast
inn í matarbúrið í skugga nætur og hnupla góða kexinu sem aðeins er
leyfilegt að japla á eftir sunnudagssteikinni.
Ætla eiga mitt eigið posse, eða klíku á íslensku, nema við munum
nota orðið posse til að halda í ungdómin, nota slettur,
ingönguprófið í það væri að stela samlokum úr kaffiteríunni. Við
munum gera grín að aulunum sem föndra allan daginn og þurfa matinn
sinn extra maukaðan. Svo á laugardögum eftir bridge mótið stelumst
við í strætó, mútum bílstjóranum með góða kexinu og höldum á stað
til næsta bæjarfélags, til þess að lumbra á aulunum á hinum
elliheimilinum, á leiðinni til baka munum við svo syngja lagið
“bílstjórin er hommi”
Maaan þetta verður gaman, so who’s with me?!?! Vantar allavegana
5-7 uppreisnarsegga með mér og eina dömu, ef ég ætla vera töff
verður maður að vera með dömu, verður að eldast vel og líta vel út
í leðurbuxum, svo myndi hjálpa ef hún kynni að ræda mótorhjól.
»
20.02.2006 00:12:41 / Sveinbi
Í
dag er sunnudagur, mörgum finnst sunnudagar vera bestu dagar
vikunnar, afhverju get ég ekki átt góðan sunnudag, spenda öllum
mínum sunnudögum í að vera lasin eftir flensuna sem ég fékk kvöldið
áður, eða ég er að vinna
var að vinna í dag til 5, kem heim og bíst við að fá allavegna 1
tíma þar sem maður gæti slappað af áður en maður færi að reima á
sig fótboltaskóna og etja kappi við strákana úr hafnafirðinum sem
kalla teymið sitt Hauka.
En nei, ég fékk ekki þennan 1 tíma frið, því heima biðu 2 frænkur
mínar sem voru ólmar í að tala við mann, þetta eru svona frænkur
sem allir eiga, ganga um með málningarfötu á vörunum á sér og vilja
deila henni með manni hvað maður orðin svakalega stór og þykjast
alltaf sjá svip með mér og einhverjum frænda mínum sem kallar sig
Höskuldur, held að Höskuldur hafi verið frændinn sem gaf mér flott
leðurveski í fermingargjöf með gylltri áletrun,
ekkert að því nema þar stóð Sigurbjörn Magnússon, langaði mest að
grýta flotta leðurveskinu hans Sigurbjörns í gólfið og öskra á
manninn hvort hann teldi þetta virkilega vera gjöf sem hentaði mér
á mínum fermingardegi, annaðhvort það eða hrifsa af honum hans
eigin veski, og segja um leið "ég hrifsa þetta af þér", og stinga
af úr veislunni.
en maðurinn var bara svo djöfulli myndarlegur að ég gat það
ekki.
veit, useless saga
Var klukkaður af púkanum henni Bergey
4. Störf sem ég hef
unnið um ævina: Fúsbalcoach, Ragnarsel, Toyota, Língsel
4. Bíómyndir sem ég
get horft á aftur og aftur: Shawshank redemption, Braveheart,
Seven, Scarface
4. Staðir sem ég hef
búið á: Skagaströnd, Breiðholtinu, Vesturbænum,
Sandgerði
4. Sjónvarpsþættir
sem eru í uppáhaldi: C.S.I, Boston legal, Prison brake, Family
guy
4. Staðir sem ég hef
heimsótt í fríi: England, Danmörk, Thailand,
vestur-húnavatnssýsla
4. Síður sem ég
heimsæki daglega: fótbolti.net, gras.is, enski.is,
lyrics.net
4. Máltíðir sem ég
held uppá: Svínahamborgarahrygg, Kalkún, nr. 27 á Thaimatstofunni,
KFC
4. Bækur sem ég les
oft: held að ég hafi ekki lesið neina bók oftar en 1 sinnu, nema
skólabækur kanski
4. Staðir sem ég
væri til í að vera núna: Thailandi, Spáni, New York,
Danmörk
4. Sem ég ætla
klukka: Valda, Anítu, Tinnu og Guðna
Don't cry for me Anchalííína
The truth is I never left you
All through my wild days
My mad existence
I kept my promise
Don't keep your distance
“get ég fengið að tala við gaurinn með derhúfuna?”
“þú ég bjóða bíómynd?”
Hef í raun aldrei verið hræddur við dýr, nema hundin hans hrafn
inga, var skíthræddur við hann þegar ég var yngri, maður var þessi
littli polli sem hafði svo gaman af því að kíkja í heimsókn til
vinar sins og þegar þangað var komið réðst þessi ófreskja alltaf á
mann og bauð mér ást sína, bauð mér hana reyndar ekkert, hann
þröngvaði henni uppá mann. Mér var ekkert sama, mér var misboðið,
langaði helst að rjúkja uppá stigamót og grenja úr mér augun
þar.
»
14.01.2006 21:12:36 / Sveinbi
Nenni eiginlega ekkert að vera taka hvert kvöld fyrir sig og lýsa
því, nema kanski gamlárskvöld, byrjuðum uppá hóteli þá að drekka,
fórum svo að fá okkur að borða inná hóteli.
Eftir það var farið niður í bæ og staðirnir þræddir, komið heim og
við héldum nokkur áfram að djamma, ólöfu datt það snjallræði í hug
að fara hringja heim og óska fólkinu gleðilegt nýtt ár, vorum
þarna kl 9 um morgunin í vandræðum með að stimpla inn réttu
tölurnar á þessum blessaða síma, allavegana átti ég í erfiðleikum
með það, maður þurfti nefnilega að stimpla inn einhvað um 5 tölur
áður en maður gat byrjað á hinu rétta númeri, og það var bara einum
of flókið fyrir mig eins og ástandið var á mér, en þetta reddaðist
ég náði að hringja 2 símtöl.
Eftir það gafst Ólöf upp og fór að sofa, á meðan mér, Arnari,
Steinþóri og Helga fengum þá hugdettu af fara leigja okkur vespur
svona í morgunsólinni, við lærðum ekkert af Baldvini sem hefði
deginum áður flogið á hausin eftir að hafa leigt sér vespu
blindfullur.

Baldvin ekki sáttur eftir vespuslysið
Allavegana þá beið ég eftir strákunum aðeins inní lobby, held að ég
hafi sofnað þar í svona 20 min. og vakna við þessu læti fyrir utan,
og kíki út um gluggan, þar sé ég Helga bruna frammhjá mér þetta
þvílíka sólheimaglott.
Það var ekki alveg nægilega sniðugt að ég væri þarna einn inní
lobby á hótelinu þannig að ég reif 2 bjóra með mér og fór aftaná
hjá honum Helga, við brunuðum út um allt eins og 2. pulsur sem voru
nýbúnar að losna við hjálparadekkin af reiðhjólunum.
Eftir ágætis reiðtúr fórum við Helgi upp á hótel í þeim tilgangi að
vekja liðið, klukkan var þarna orðin svona um 11, við hlupum og
bönkuðum á allar dyr sem við fundum, en engin svaraði, hittum svo
Steinþór og fórum við 3. út að sundlaug og drápumst allir þar í
svona 4 tíma.
Þannig voru áramótin hjá mér.
Deadly með vespuhjálmana
Það er mikið af skrýtnu fólki þarna úti, en svo eru líka alveg
fullt af frábæru fólki þarna, en einhvernvegin var maður ekki með
100% traust á þessari þjóð þegar kom að peningum, treisti
einhvernvegin ekki þeim sem selja lays flögur með rækju og
laxabragði. Margir sem sáu bara peningamerki á enninu á manni þegar
maður labbaði frammhjá þeim, þar á meðal konurnar sem voru að bjóða
þjónustu sína eina kvöldstund eða svo. Maður mátti ekki labba 5.
metra inná skemtistað stundum án þess að vera klipinn í rassin 2-3
sinnum og í frontið svona 1-2. það var orðið svoldið þreytt. Svona
þegar líða tók á 2 vikuna. Hehe I kid I kid.
En hmmm, mikið búin að vera spurður af því hvað fólkið gerði af sér
þarna úti, þannig að…
Teddý – ráðskaðist með allt sem kallaðist þjónustufólk og fékk sér
AnanaZ.
Ingalilja – drakk kókoshnetudafa og dansaði húllahúlla
Baldvin – Datt á vespu og seldi sig fyrir 5 bött, 10 kr eða
einhvað.
Helgi – tileinkaði ferðinni leit sinni að olsen systrunum.
Tinna – Fundaði með hópi útlendra manna í tíma og ótíma
Auður – dansaði líkt og hver annar ladyboy
Berglind – fékk rússnesku mafíuna á sig.
Ólöf – réðst á rússnesku mafíuna.
Guðbjörg – lærði dagskrána á star-world utan af, og sást lítið
eftir það.
Steinunn – eignaði sér sviðið á lúsifer
Rakel – kúkaði í strákaklósettið og kynntist Fabio
Þorsteinn – Tapaði í armbeygjukeppni fyrir Berglindi
Valdi - … svaf
Erla lind – lenti í því ævintýri að stinga taxa af.
Guðni – Potaði linsur úr fólki og fékk rússnesku mafíuna á sig
fyrir það.
Ásdís Ó. – eignaðist nýjan vin, grísin hlöðver.
Kristjana – Gerðist vopnasmyglari
Steinþór – heimsótti nuddstofu.
Erla maría – mætti kl. 4.
Þorvaldur – eignaðist vinkonur á gogo bar.
Palli – týndist.
Bogga – komst í mjúkinn hjá gogo gellu.
Ásdís R og Sylvía – urðu blautar vegna rússnesku hönkana.
Arnar – lét hóru rústa sér í pool.
Sandra – lennti í slag við gogo gellu
Sigrún – pissaði í sjóinn og segist ekki muna eftir því.
Árni – varð eftir á eyjunni og masteraði bardagatækni sína
Fjóla - hékk á kk gogo
börum.
Ég – fékk mér kakó á starbucks.
Flest allt einkahúmor sem fáir eiga eftir að skilja.
Er allur í einhverjum sudda bitum eftir þessar
heimsku moskítóflugur, hafa örugglega planað að taka mig
sérstaklega fyrir síðustu 3 dagana, því ég var svo sniðugur að gera
grin að öllum þeim sem voru bitnir í byrjun ferðarinnar, ég hló og
benti á fólk sem varð fyrir barðinu á þessum flugum, þær hafa
örugglega tekið eftir því, haldið fund og ákveðið að núna væri tími
til að taka þennan ljóshærða unga pilt í gegn, svo hafa þær allar
hlegið og nuddað saman frammlöppunum eða hvað sem þær vilja kalla
þetta, svona eins og mr. burns gerði svo frægt í simpsons hér áður
fyrr.
og já... er búinn að setja inn fullt af myndum, flest allar í nr.2
en restin í 3
»
25.12.2005 02:38:39 / Sveinbi
Ég er ekki sá allra metnaðarfyllsti nemandi sem hægt er að
finna, reyndar er ég tossi, tossar fá alltaf allt í bakið svona
rétt fyrir prófin, þeir fá prófljótu, ég fæ prófljótu, prófljóta
er þegar nemandi verður að cutta á allt nema læra nánast, loka
sig inn í herbergi, hætta að sjá um sjálfan sig, raka sig og
svona, þeir verða fölir og fá baugu niður á kinnar. Klæðast bara
ljótum og/eða skrýtnum fötum sem eru þægileg. Svo er það
herbergið, allt út í bréfum og flöskum, mætti halda að ég væri
að reika um götur sandy hills á kvöldið í leit að flöskum sem ég
geymi hérna. Fötin, fötin mans covera allt gólfið ásamt
matardiskum og drykkjarglösum sem eru hálftóm, eða eru þau
hálffull?
Þannig lýsir
prófljóta sér. Hefur þú fengið prófljótuna?
Fór í 2 próf í spænsku, þótt maður þurfi að vera með einhvað smá
basic skilning í þessu, þá eru þessi próf álíka fyrirsjáanleg og þýsk
klámynd, þar sem aðallhetjan mun segja einhvað sniðugt á því ágæta
tungumáli og dreifa hermönnunum sínum yfir andlit einhverjar
rísandi kvikmyndastjörnu.
Náði öllu,
útskrifaðist og er á leiðinni til Thailands eftir 3 daga. Bújah
Singstar er ekki sniðugt, var mjög stoltur af því að hafa aldrei
tekið þátt í því, en af einhverjum ástæðum ákvað ég að prufa uppí
vinnu, ég byrjaði á því að keppa við samstarfsfélaga minn, ég
tapaði, ég er einn tapsárasti maður sem til er og var því ekki
sáttur, ákvað að kalla á einn þjónustuþegann þegar enginn sá til,
keppinautur minn var 7. ára strákur sem var einhvað ryðgaður í
enskunni og gat því ekki beint lesið textann, (vinn á
skamtímavistun fyrir spes krakka), ég opna hurðina og athuga framm,
bara til að vera viss að enginn myndi nú vera að earsdroppa, svo
var ekki, þannig að ég valdi lag sem ég var nú viss um að ég myndi
vinna, en nei…. Ég tapaði fyrir 7. ára strák…. Singstar gæti ekki
spottað upprísandi tónlistarmann jafnvel þótt David Hasselhoff
myndi taka þátt í því. Stupid singstar…
Fer að bæta einhverjum myndum inná, einhverja blöndu af nokkrum
kaffihúsakvöldum og einhverju sniðugu, svo náði ég einu svakalegu
myndbandi af Berglindi sem er gjörsamlega MUST að sjá, þar sem hún
var baulandi, mjálmandi, syngjandi og dansandi í einu OG tjáandi
hatur sinn á Kjartani galdramanni, sem gerði ekkert nema níðast á
greyi strumpunum. Einnig er ég hugsanlega komin með nokkra
meðlimi í klúbbinn.
Og já... gleðileg
jól og allt það.
»
04.12.2005 23:13:33 / Sveinbi
Jólin, heimsku
búðareigendur sem fara auglýsa jólavörur svona snemma, eina sem
mér hlakkar í raun til á jólanna er maturinn og ölið, jú það er
reyndar eitt gott við að jólin koma snemma, jólabjórinn kemur
snemma. Hef aldrei verið neitt jólabarn, veit ekki afhverju,
aldrei hlakkað neitt sérstaklega til jólanna, held að sú
tilfinning hafi slöknað þegar ég var lítill og fékk sæng í
jólagjöf í staðinn fyrir segamega drive leikjatölvuna sem var
hátindurinn á þeim tíma, var búin að fá nokkra leiki lánaða
meira að segja, því ég var svo viss um að ég myndi fá hana, en
nei… svaf ekki vel þá nótt, þótt sænginn hafi nú alveg staðið
fyrir sínu og haldið á mér hita.
“Bakvið alla þessa fegurð er raunveruleg manneskja”
Fór á myndina um Emely Rose, er alger pussa á svona myndum en samt
fer ég alltaf hmm? Allavegana, þegar ég kem heim kl einhvað um 2:30
um nóttina, þá er ég við það að fara horfa aðeins á sjónvarpið,
þegar rafmagnið fer af húsinu!, I kid you not, þeir sem eru búnir
að sjá myndina ættu svona aðeins að skilja betur en hinir hvað
gerist þegar rafmagnið dettur af þegar kl er 3. Var ekki að þora
fara fram að henda rafmagninu aftur upp, alveg sama þótt mjólkin
mín yrði volg með kókópuffsinu morgunin eftir.
“Pabbi, má ég sjúga bjúga?”
Ekkert nema góðir hlutir að gerast í klúbbnum mínum sem er hægt að
skoða allt um hérna til hliðar, orðnir einhvað um 8. meðlimir held
ég
Var valinn flottasti búningurinn í 80’s party sem ég ákvað að koma
við í, mjög stoltur af því, veit samt ekki hvort þær völdu mig
vegna vorkunar, því ég var ennþá drekkandi, ennþá í fötunum og með
ekkert far heim morgunin eftir. Fékk kaffibrúsa skreyttan blómum,
upptakara sem virkar ekki, var næstum mér og Baldvini að bana.
Minnir að það hafi verið einhvað eitt í viðbót fyrir utan þennan
fallega bláa Tigerpoka sem hýsti allar þessar gjafir, en bara man
ekki hvað það var.

»
03.11.2005 19:30:24 / Sveinbi
Þoli ekki fólk sem
klæðir sig illa í vondu veðri, strákar í einhverjum bolum sem eru
gjörsamlega að springa utan af sér útaf þeir eru svo þröngir, bara
til að sýna tatooið af akkerinu á upphandleggsvöðvanum, og að deyja
úr kulda, eða þá stelpur sem eru í einhverjum littlum sætum blússum
og stuttum pilsum bara til að halda í ýmindina, amma gamla væri nú
ekki hress með það, að klæða sig illa og vera svo með kvef og
hálsbolgu. Annað sem amma gamla skilur ekki að fólk sé að kaupa sér
gallabuxur fyrir 20.000 kr. Svo eru þær ekki einu sinni heilar, það
er búið að rífa nokkur göt á þá. Það er nú eitt að kaupa buxur
fyrir 20.000 þúsund en að þær séu ekki einu sinni heilar, hugsar
hún líklegast.
Foreldrar mínir eru ekki þeir gáfuðustu þegar kemur að flestu
sem viðkemur nútímanum, eða nýjustu tækni, sími systur minnar
kvakar þegar hann er við það að verða batteríslaus, kvakar eins og
önd. Símar er eitt af þessum nútímafyrirbærum sem foreldrar mínir
ætla aldrei að læra á, hef sjálfur gefist upp á að reyna kenna þeim
á að lesa sms og ath missed calls. Eins og gengur og gerist verða
símar batteríslausir, byrjar þá ekki síminn að kvaka, pabbi einn
heima byrjar að líta hálf ruglingslega í kringum sig útaf öllum
þessum látum, ekki hefur einhvað helvíti komist inn í húsið? Hefur
hann líklegast hugsað. Og byrjar óttarslegin að leita um húsið
eftir þessum óboðna gesti. Þegar sú leit ber engar árangur ákveður
hann að fá móðir mina í lið með sér og leita þau saman, en ekkert
finna þau þrátt fyrir stöðug læti í öndinni, þau komast að þeirri
niðurstöðu að öndin sé ekki inn í húsini eftir mikla leit þar,
þannig að pabbi gamli tekur nokkra hringi í kringum húsið, til að
reyna handsama þrjótinn, eftir nokkra hringi er kallinn orðin
lafmóður, og enn kvakar öndin, þannig að hann kallar á liðsauka frá
mömmu, og ætla þau sko aldeilis að leika á hana, þannig að þau fara
sitthvoru megin við húsið til að góma hana. En viti menn… ekki náðu
þau henni. Nú var kallinn orðin alveg vitlaus, og var komin með þá
kenningu að þrjóturinn hafi skriðið undir pallinn, var komin
með kúbein og járnkall til að rífa upp hálfan pallinn en
alltieinu verður allt hljótt, kvakið hættir, og auðvitað halda
foreldrarnir að þau hafi unnið frækin sigur á óboðna gestinum, að
hann hafi flúið þessar þvílíku þrekraunir, eða þangað til að þau
fóru að tjá sig um þetta við restina af fjölskyldunni, þá gaf ég
frá mér eitt stórt HA og barði lauslega í borðið. Þau eru samt ágæt
sko..
Fór í bústað síðasta miðvikudag með aðlinum, byrjaði að drekka
hérna í Sandgerði kl 12:30, var svo pikkaður upp og haldið af stað
í þrastaskóg, þegar þangað var komið beittum við hópþrístingi á 2-3
stelpur til að grilla og eftir smá var maður komin með feitan
borgara í hendi. Drykkjan hélt áfram og var ég vopnaður bjór,
eplasnafsi og myndavél. Alveg hörku skemmtilegt kvöld þar sem allt
var að gerast eins og égtókuppkynlífsmyndband og svo var dansað
eins og það væri engin morgundagur. Fimtudagurinn var svipaður nema
myndavélin fékk ekki að njóta sín jafn vel og kvöldið áður. Hendi
þessu upp á picturetrail þegar ég nenni.
»
20.10.2005 19:41:21 / Sveinbi
Er búin að vera fara á nokkur svona sjálfsvarnarnámskeið…..
vinnan að láta alla fara í þetta, dno why, allavegana mér er
sama, er á launum meðan maður er að þessu, fá borgað fyrir að
læra berja fólk sem er ekkert nema sniðugt, NEMA það er annað
sem er ekki beint svona sniðugt, þetta er hjá Bjarna judo, einn
af fáum íslendingum sem hafa unnið verðlaun á ólimpíuleikum, og
þar sem ég er eini gaurinn þarna sem er ekki yfir 150 kg, þá
tekur hann mig alltaf og sýnir svona hinum hvernig á að gera hin
og þessu brögð, hendandi mér út um allt gólf og taka einhvað
svaka leynibrögð á manni svo maður hrynur bara í gólfið af
sársauka.
helvítis
sekkurinn...
Ring ring heyrist í símanum, eða ætti að gera það, heirðist
reyndar mp3 lag sem ég er með stillt á minn síma, lagið 1979,
örugglega ágætis ár það, samt ekki viss, var ekki til þá.
Ring ring heirðist aftur,(eða heirðist svoleiðis?) ég segi halló,
gamall maður segir “stefán?” ......engin stefán hérna svara ég, “er
hann nokkuð þarna” segir þá maðurinn.......engin stefán hérna
endurtek ég, þá heirist ekkert nema svona andardráttur í símanum,
og svo lokst eftir svona 10 sek. Segir hann “Veistu nokkuð hver það
er?” .......... nei, ekki þekki ég neinn Stefán, þá segir hann
strax, “Stefán á vitanum?...... Þar sem ég er Sandgerðingur og
vitinn gamall pubb hérna í Sandy þá kannast ég nú við nafnið og læt
hann vita af því, en þekki annars mannin ekkert. “veistu nokkuð
númerið hjá honum?” segir gamli maðurinn...... nei því miður þá
þekki ég þennan mann ekki neitt, segi ég. Og var byrjaður að vera
soldið pirraður á þessu. “er einhver heima hjá þér sem gæti vitað
númerið hjá honum?” ....... nei, svara ég með frekar hvassri
tóntegund, og spyr hann afhverju hann gluggi nú ekki bara í
símaskránna frekar en að vera trufla mig. “já, sko hann var ekki í
símaskránni, en þakka þér nú samt fyrir”....... segir maðurinn og
skellir á.
Hversu useless gaur, að vera leita í símaskránni af Stefáni, og þar
sem sú leit bar ekki árangur, þá pikka einhvern úr “S”inu… “Já,
Sveinbjörn, hann hlýtur að kannast við Stebba” useless..
"eg sjaði tu uti i
gaer og tu bara vera saetur!"
Fór á Mugison á fimtudaginn, var ekkert nema snilld, gellan hans
söng með honum einhvað, hún var svona lala, samt með flotta rödd.
Minnti mig svoldið á lag með Damien rice og vinkonu hans.
Ætlaði bara að vera léttur þar, vaknaði svo morgunin eftir með 2.
karlmönnum í rúminu mínu…. Og það besta var að mamma labbaði inn
meðan við vorum að kúra… tók mig svona 10 min að sannfæra hana að
þetta væru össalega góðir strákar úr bænum, og að þeir væru bara
vinir mínir, veit samt ekki hvort hún hafi trúað mér, er ennþá að
gefa mér illt auga þegar ég segist ætla kíkja til vina minna.
Og já, átti alltaf eftir að gera þetta klukk
thingy....
-
Ég er ógeðslega tapsár
-
Hata postulínsdúkkur
-
Verð í Tælandi yfir áramótin
-
Er lofthræddur
-
Er alkahólisti samkvæmt internetinu
»
30.09.2005 14:29:41 / Sveinbi
Bláa lónið ætti að láta fylgja 2.gr af kókaíni með þegar maður
ákveður að skella sér ofan í hjá þeim, miðað við hvað þeir eru
að rukka. Fór núna um daginn, kostaði 1400. kr inn, meina vá
1400. krónur, svo láta þeir svona littla húðnæringu fylgja með,
eins og það eigi að bæta upp fyrir þetta rán. Ágætis staður
samt, meina fékk frían bjór og kokteil 
Svo væru bara
franskir ljósmyndarar með rauða bakpoka þarna á ferð?
Þegar minns var
lítill þá hélt ég alltaf að þetta héti “bláa
ljónið”… að það væri bara blátt ljón strunsandi
þarna kringum sundlaugarbakkann, bannandi krökkunum að renna sér á
maganum í rennibrautunum og bjargandi fólki frá drukknun, alger
hetja. Öskrandi og urrandi á fólkið sem gegndi ekki, skrýtið að ég
þorði aldrei að fara með pabba þangað þegar hann fór. Meina hver
vill láta urra á sig?
“I love cats, they taste just like chicken”
Þreyttur á að vinir manns eigi kærustur/kærasta, aldrei neitt að
gera þá, heng bara og leiðist. Held að flestir af vinum mínum eiga
eitt stykki svona kærustu/kærasta, svo þegar þær/þeir láta sig
hverfa í einhvern tíma, þá er komið hlaupandi til manns og bara
ætlast til að maður sé hinn mesti máti, iss.
Þannig að.. legg
til að þið hættið þessu kærustumálum og komið að leika við
mig.(yeye ekki þannig)
I love you big long time, no money for baby, you me, boom? Boom
boom long time. You me ding ding?
Svo voru bara færeyingar valhoppandi niður hlíðargötuna eitt
kvöldið, haldandi á blómvöndum og blöðrum fyrir íbúa sandgerðis,
með sleikibrjóstsykur í för.
stoppuðu svo fyrir utan hús eitt á götunni og fóru að syngja
jólasöngva, svona íbúunum rétt til skemmtunar. Vildu ekkert vesen,
vildu bara koma þakklæti sínu á framfæri, með þessum úrvals
söngvum. En þá tóku íbúar hússins einhvað illa í þetta og
bara réðust þá, ástæðulaust, nema til þess eins að
fá smá útrás, greyið færeyingarnir, þeir bara vissu ekki
hvaðan á sig veðrið stóð.
Moral of the
story; Hlustið á báðar hliðar málsins áður en þið farið að spreða
sögum... og ekki treysta færeyingum, þeir eru slóttugir 
“Finn fyrir innri frið eftir að ég flutti hingað”
Afhverju eru kettir alltaf að stelast inná pallin hjá mér, heimsku
kettir, eins og pallurinn heima hjá þeim sé ekki nægilega góður
fyrir þá. Þá telja þeir það bara sjálfsagðan hlut að kíkja í
heimsókn til mín.
Sá einn kött vera
leynipúgast inná pallinum hjá mér, ákvað að vera svaka sniðugur og
sína honum að hann væri ekkert velkomin hingað, flýtti mér í
inniskó, fyllti bala af vatni, opnaði svalahurðsdyrnar mjög rólega
og þóttist vera svaka vinalegur, en svo stökk ég af stað með balann
og ætlaði að skvetta yfir hann, en nei…. Þegar ég stökk af stað,
fattaði ég að inniskórnir voru svona 3-4 nr. Of stórir og ég komin
á þennan svaka hraða, byrja að mistíga mig og dett úr öðrum skónum,
flýg á hausinn og helli yfir sjálfan mig, get svo svarið það að
kötturinn hló að mér áður en hann valhoppaði burt.
Svara þessu klukki
næst Óttar 
»
05.09.2005 10:33:14 / Sveinbi
Ákvað
núna um helgina að prufa smá kenningu á sjálfum mér, hversu
mikið af tequila ég gat drukkið yfir eina helgi án þess að
vera slefandi fullur, á fimtudagin ákvað ég að vera rólegur í
víninu og var aðallega í bjórnum, tók bara 3 skot +bjór… varð
haugur.
Á föstudaginn var
ég ónýtur, missti talningu á skotunum. Vaknaði kl 12. þegar ég var
vakin af mínum ástkæra bróðir, þá var ég ber að ofan sofandi í
tölvustólnum mínum horfandi á Omega, veit ekki hvort ég hafi ætlað að
leita ráða við að exorcise’a vínið úr mér eða hvort það væri nokkuð
hægt að panta kirkjuvín þarna einhverstaðar.
Laugardagurinn var
fínn, þótt ég hafi misst talninguna aftur. Var bara veltandi mér í
gólfinu heima hjá Hjalla ásamt hinum guttunum.
Gaf Einari 2
skot, frétti að hann hafi hætt við kef ferðina og farið beint
heim til sín og ælt allt út þar heheh
Þannig að ef þið
sáuð mig um helgina, og ég virkaði einhvað
skrítinn/reiður/glaður/leiður and so on… þá var það í þáu
vísindana, var alveg sáttur gaur sko, bara tilraunin hafði einhver
aukaáhrif.
JudoCHOP
Elska hvað ég verð
ekki þunnur af tequila, mætti bara hress og kátur í vinnuna á sun
eftir dansiballið. Gaman að horfa svo uppá alla aðra vera drepast
úr þynku.
Hvar er snickersið mitt
Hef svoldið pælt í því hvernig týpa ég væri ef ég yrði nú gerður
að teiknimyndarpersónu, hvort ég yrði þessi heimski sidekick sem
klúðraði alltaf öllu, eða væri ég foringin í hópnum sem reddaði
alltaf öllu á endanum, jafnvel væri ég þessi Vonda típa sem myndi
svífast einskis til að ná heimsyfirráðum, tjah eða hans meðhjálpari
sem væri alltaf að snúast í kringum rassin á honum.
Allir hlupu undan
Steingrími Njáls nema Svanur, hann var vanur.
"Hvernig prútta ég eiginlega?"
Djöful hlítur að
vera leiðinlegt að vera mávur, sérstaklega mávaungi. Hvað gera þeir
á daginn? Highlide dagsins er örugglega þegar þeir stelast til að
fara á heitt malbikið til að hlýja sér aðeins. Svo þegar þeir
loksins sjá að það sé bill að koma þá tekur það þá svona 1 min að
drulla sér á loft. Plus það, þá eru mávaungar ómyndarlegri en allt,
sem er ekki alltof gott. Öfunda örugglega hina flottu ungana sem fá
alltaf gefins brauð við tjörnina.
»
11.08.2005 12:44:09 / Sveinbi
Hafiði spáð í
því hvernig Ísland væri ef Hitler og co. hefðu sigrað heiminn? Það
væru Þjóðverjar út um allt, jafnvel hérna á littla Íslandi, þá gæti
maður litið í hvað átt sem er og sagt "vá, sérðu þjóðverjann" það
yrðu nú góðir tímar. Ég væri svoldið til í að sjá það, þá myndu
konur vera órakaðar og gangandi um í tréklossum, karlarnir myndu
safna yfirvaraskeggjum og borðandi pylsur í hvert mál. Hah hver
væri ekki til í að borða pylsur í hvert mál?
Skólinn svo að fara byrja aftur, get ekki alveg sagt að mér
hlakkar mikið til, en ég á bara 9. eða 10 .einingar eftir, hoho
Líka komin tími til, er búin að hanga þarna alltof lengi og löngu
búin með 140 einingar, held að ég sé núna komin með 155, og enda
því í um 165 einingum, já krakkar mínir, verið búnir að velja ykkur
hvað ykkur langar að læra áður en þið farið í skóla.
Hvað þú heita?
Held að fuglar séu að brugga ráð, með það í hyggju að ráðast á
mannfólkið og taka völdin, var að keyra heim frá stykkishólmi, og á
svona 20 min kafla keyrði ég á 3. fugla! liggja örugglega í leyni
við þjóðveginn og þegar þeir sjá ljós þá bara, ÁRÁS Þannig að ég
varð eiginlega fyrir svona sjálfsmorðsárás, en minn trausti og góði
brynvarði bíll, sem liggur á verkstæði núna, bjargaði mér alveg,
held að ég splæsi á hann bóni fyrir lífsbjörgina.
Fór á minningarathöfn í fyrradag um Hiroshima og Nagasaki, þótt
það séu 60 ár síðan og þetta alveg langt frá okkur, þá fannst mér
frábært að íslendingar geti safnast saman og minnst fórnarlambana.
Hefði samt alveg viljað sjá fleira fólk þarna. Hef samt spáð lengi
í því þegar einhver lendir í einhverju, þá sé hann kallaður
fórnarlamb, lamb, afhverju lamb?, Siggi og Dóri littlu duttu af
reiðhjólum sínum útaf því að verkamennirnir hefðu ekki klárað
gangstéttina nægilega vel, greyið littlu lömbin.
Talandi um dýralífið, afhverju þurfa kanar alltaf að gelta þegar
þeir sjá einhvern flottan kvennmann?, fór á tribute tónleika á
gauknum í gær, á borði rétt hjá okkur voru nokkrir kanar, og alltaf
þegar dansarinn, sem var með hljómsveitinni, kom á svið fóru þeir
að gelta, afhverju hneggja þeir ekki, eða jarma, það væri svoldið
sniðugt... svona uppá tilbreytinguna
Barn þú heita mjásikisi
Hvernig slærðu 5. flugur í einu höggi?..... Lemur pönnu í
andlitið á afríkubarni
Var að skrá mig sem svona stuðningsforeldi, valdi mér littla stelpu
í Úganda. Fyrir mjög lítin pening ertu alveg að borga fyrir
skólagöngu og læknishjálp. Sleppa bara svona 1. bíóferð á mánuði og
þá ertu alveg að redda barninu.
Var bara að komast á því ég á afmæli sama dag og Johann
Sebastian Bach, veit ekki alveg hvort ég ætti að verða ánægður eða
ekki, hann var nefnilega þjóðverði held ég.
»
Síður: 1 2
|
|